Verðbólgudraugurinn hrellir Þröst Leó

ÖBÍ réttindasamtökin krefjast hækkunar lífeyris.
ÖBÍ réttindasamtökin krefjast hækkunar lífeyris. Ljósmynd/Aðsend

herferð réttindasamtakanna ÖBÍ hefur litið dagsins ljós og skartar Þresti Leó Gunnarssyni í aðalhlutverki þar sem hann berst við „verðbólgudrauginn“ svokallaða í daglegu lífi.

Slagorð herferðarinnar er: Hækkun lífeyris er lífsnauðsynleg en ÖBÍ krefst hækkunar lífeyris.

Felst hún í þremur smáskeiðum þar sem sjá má hinn illræmda verðbólgudraug stela úr matarkörfu Þrastar í matvöruverslun, kljást við hann á bensíndælunni og stela af honum mínútum á ljósabekknum.

Verðlag húsnæðis hækkað um 42%

Segir í tilkynningu ÖBÍ að verðbólgan hafi leikið landsmenn grátt síðustu misseri og að í dag sé allt of dýrt að fara í búð, fólk eigi rétt svo fyrir húsnæðiskostnaði og varla sé hægt að gera eitthvað skemmtilegt þegar búið sé að greiða fyrir nauðsynjar.

„Þótt núna sé loksins farið að rofa til, stýrivextir hafi verið lækkaðir örlítið, er verðbólgan enn mikil, verðlagið allt, allt, allt of hátt og vextir sömuleiðis,“ segir í tilkynningunni.

Lífeyrir hafi vissulega hækkað á síðustu þremur árum en verðlag hafi hækkað meira. Húsnæði um 42% og matur og drykkur um nærri 30%.

Verðlag á mat og drykk hefur hækkað um nærri 30%.
Verðlag á mat og drykk hefur hækkað um nærri 30%.

Stelur lífeyrishækkunum

„Lífeyrir hefur hækkað á síðustu þremur árum, sem er frábært. Verðlag hefur hins vegar hækkað meira – húsnæði um 42% og matur og drykkur um nærri 30%. Verðbólgudraugurinn hafi því í raun stolið öllum hækkunum síðustu ára og mun meira en það.

„Hugmyndir um að hækka lífeyri einungis til að standa vörð um kaupmátt eru sérkennilegar í ljósi þess að þessi meinti kaupmáttur er einfaldlega ekki til staðar. Hver er raunverulegur kaupmáttur 300.000 króna þegar þú þarft að borga meira en þá upphæð fyrir nauðsynjar?“

Herferðin er unnin í samstarfi við BIEN og er leikstýrt af Ágústi Bent Sigbertssyni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert