Borgin fær 3,3 milljarða fyrir Vesturbugt

Teikningar að Vesturbugt við Gömlu höfnina.
Teikningar að Vesturbugt við Gömlu höfnina. Ljósmynd/Reykjavíkurborg

Tilboð félagsins M3 fasteignaþróunar ehf. í byggingarrétt við Vesturbugt við Gömlu höfnina í Reykjavík var samþykkt af borgarráði í gær.

Lóðirnar í Vesturbugt eru Hlésgata 1 og 2. Heimilt er að byggja allt að 177 íbúðir í tveggja til fimm hæða húsum auk bílakjallara og um 1.420 fermetra af atvinnuhúsnæði.

Byggingarréttur er seldur á rúmlega 2,8 milljarða og álögð gatnagerðargjöld eru um 330 milljónir. Greiðslur til Reykjavíkurborgar nema því um 3,2 milljörðum króna, að því er kemur fram í tilkynningu frá borginni.

Að lágmarki 25% íbúða á byggingarreitnum eiga að vera leiguíbúðir samkvæmt deiliskipulagi. Þar af eiga Félagsbústaðir kauprétt á allt að 14 íbúðum og Félagsstofnun stúdenta á kauprétt á allt að 50 íbúðum.

Fram kemur að uppbygging í Vesturbugt hafi verið nokkuð lengi á dagskrá en byggingarétturinn var boðinn út að nýju í júlí og var M3 fasteignaþróun ehf. Hæstbjóðandi.

„Síðasti þéttingarreiturinn“

„Það er frábært að geta nú loksins hafið hönnun og byrjað að skipuleggja uppbyggingu á þessum einstöku byggingarreitum við vesturhöfnina við miðborg Reykjavíkur,“ segir Örn V. Kjartansson framkvæmdastjóri M3 fasteignaþróunar ehf., í tilkynningunni.

„Segja má að þetta sé síðasti þéttingarreiturinn í miðborginni og í raun einstakt að geta boðið íbúðir til sölu þetta nálægt gömlu höfninni í Reykjavík. Ef vel gengur með hönnun má gera ráð fyrir að framkvæmdir hefjist snemma vors á næsta ári,” bætir hann við.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert