Tilnefningar til Íslensku menntaverðlaunanna kynntar

Verðlaunin verða veitt á Bessastöðum 5. nóvember.
Verðlaunin verða veitt á Bessastöðum 5. nóvember. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Tilnefningar til Íslensku menntaverðlaunanna voru tilkynntar í dag. Verðlaunin verða veitt á Bessastöðum 5. nóvember.

Markmið verðlaunanna er að auka veg menntaumbótastarfs og vekja athygli samfélagsins á metnaðarfullu og vönduðu skóla- og frístundastarfi með börnum og unglingum. Verðlaunin eru veitt í fjórum flokkum.

Til­nefn­ing­ar hljóta að þessu sinni:

Framúrsk­ar­andi skólastarf eða menntaumbætur.

  • Árskóli á Sauðárkróki fyrir forystu um fjölbreytt og faglegt skólaþróunarstarf sem hefur verið öðrum skólum góð fyrirmynd.
  • Fellaskóli í Reykjavík fyrir fjölmenningarlega og skapandi kennsluhætti þar sem byggt er á virðingu fyrir félagslegum og menningarlegum margbreytileika.
  • Listasafn Íslands fyrir öflugt fræðslustarf og að gefa út Sjónarafl – þjálfun í myndlæsi, metnaðarfullt og framsækið námsefni í mynd- og menningarlæsi sem nýtist ólíkum nemendahópum á öllum skólastigum.

Framúrsk­ar­andi kennari

  • Dóra Guðrún Wild kennari við leikskólann Hlaðhamra í Mosfellsbæ, fyrir faglega og metnaðarfulla leikskólakennslu, meðal annars útinám og fyrir að auðga líf barna í Mosfellsbæ með fjölbreyttu lista- og menningarstarfi.
  • Guðrún Sigurðardóttir kennari við leikskólann Gimli í Reykjanesbæ fyrir einstaka fagmennsku og ástríðu í leikskólastarfi þar sem áhersla er lögð á jákvæð samskipti, styðjandi umhverfi, samkennd og traust.
  • Hrafnhildur Sigurðardóttir kennari við Sjálandsskóla í Garðabæ fyrir þróun fjölbreyttrar og hugmyndaríkrar útikennslu, fjölbreyttar valgreinar og leiðsögn við kennara og kennaraefni um útivist og umhverfismennt.
  • Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir kennari við Grunnskóla Borgarfjarðar fyrir þróunarstarf við að innleiða námskrá í kynheilbrigðisfræðslu með áherslu á sjálfs- og líkamsímynd.

Framúrsk­ar­andi þróunarverkefni

  • Menntun hugar og handar – nemandinn sem manneskja. Þróunarverkefni í Háteigsskóla þar sem markvisst unnið að því að efla sterka tilfinninga-, samskipta- og sjálfsþekkingargreind.
  • Snjallræði – þróunarverkefni í Helgafellsskóla í Mosfellsbæ. Heildstæð nýsköpunarkennsla sem nær frá leikskólastigi til unglingastigs.
  • Sviðslistabraut við Menntaskólann á Akureyri. Kjörnámsbraut sem miðar að því aðveita nemendum innsýn í töfraheima sviðslistanna og hinar ýmsu hliðar og störf innan sviðslistaheimsins.

Framúrsk­ar­andi iðn- eða verkmenntun

  • Rafmennt fyrir þróun sveigjanlegs og einstaklingsmiðaðs náms í raf- og tæknigreinum.
  • Verkmenntaskóli Austurlands fyrir að efna til samstarfs við grunnskólana í Fjarðabyggð um framboð á fjölbreyttum verklegum valgreinum.
  • Þröstur Jóhannesson kennari við Menntaskólann á Ísafirði fyrir þróun vandaðs verknáms með áherslu á nútímatækni og sjálfbærni.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka