Annar stór skjálfti í Bárðarbungu

Skjálftar eru algengir í Bárðarbungu.
Skjálftar eru algengir í Bárðarbungu. mbl.is/Rax

Skjálfti af stærð 4,5 varð norðaustan við Bárðarbungu klukkan 17.56 í dag.

Nokkrir eftirskjálftar fylgdu í kjölfarið, en sá stærsti var af stærð 2.7 samkvæmt tilkynningu frá Veðurstofu Íslands.

Nokkur virkni hefur verið í öskjunni síðustu daga en engin merki eru um gosóróa.

Jarðskjálft­ar eru al­geng­ir í Bárðarbungu sem er sá staður á landinu þar sem flestir og stærstu skjálftar láta á sér bera.

Í gær mældust tveir skjálftar í Bárðarbungu yfir þremur að stærð. Þá mældist fimm stiga skjálfti í eldstöðinni á fimmtudaginn.

Fréttin hefur verið uppfærð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert