Svandís Svavarsdóttir, nýkjörin formaður Vinstri grænna, tekur hiklaust undir orð Guðmundar Inga Guðbrandssonar, varaformanns hreyfingarinnar, um að þjóðarmorð eigi sér stað á Gasa.
Eru þau einu ráðherrar ríkisstjórnarinnar sem hafa fullyrt það opinberlega til þessa.
Guðmundur Ingi hélt sína fyrstu og síðustu formannsræðu á fyrsta degi landsfundarins í gær og sagði Ísraelsmenn fara fram með ofríki á Vesturbakkanum og um sé að ræða þjóðarmorð á Gasa.
Spurð hvort hún sé sammála fullyrðingu Guðmundar Inga svarar Svandís játandi.
„Ég myndi hiklaust taka undir þessi orð og ég held að það skipti máli við svona hryllilegt ástand, sem er búið að vara á mánudag í heilt ár á Gasa og auðvitað líka á Vesturbakkanum, að þá verði að kalla hlutina sínum réttu nöfnum og ég held að það eigi að vera okkar pólitíska hlutverk og okkar pólitíska verkefni að segja eins og er.“