Halla, Björn og Þórdís í kóngsins Kaupmannahöfn

Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, og Björn Skúlason, eiginmaður hennar.
Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, og Björn Skúlason, eiginmaður hennar. Ljósmynd/Forseti Íslands

Halla Tómasdóttir, forseti Íslands og Björn Skúlason, eiginmaður hennar, halda í dag til Danmerkur vegna ríkisheimsóknar sem hefst í Kaupmannahöfn á morgun.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra verður með í för ásamt opinberri sendinefnd.

Fram kemur í tilkynningu frá skrifstofu forsetans að hefð sé fyrir því að fyrsta ríkisheimsókn nýs forseta í embætti sé til Danmerkur.

Þetta er jafnframt fyrsta ríkisheimsóknin sem Danir bjóða til eftir að Friðrik X. varð konungur.

Markmið heimsóknarinnar er að styrkja söguleg tengsl Íslands og Danmerkur og efla enn frekar hið nána samband þjóðanna.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra verður einnig með í för.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra verður einnig með í för. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Viðskiptasendinefnd með í för

Þá segir, að samhliða heimsókninni ferðist viðskiptasendinefnd á vegum Íslandsstofu Grænvangs, Samtaka Iðnaðarins og Dansk-íslenska viðskiptaráðsins til Danmerkur með fulltrúum um 50 íslenskra fyrirtækja sem sæki þar hluta dagskrárinnar með konungi og forseta, ásamt fulltrúum úr dönsku viðskiptalífi.

Megináhersla viðskiptasendinefndarinnar sé á eflingu núverandi viðskiptatengsla og aukið samstarf um orkumál og grænar lausnir og sameiginlega hagsmuni við að mæta loftslags- og sjálfbærnimarkmiðum þjóða.

„Heimsóknin hefst að morgni þriðjudagsins 8. október þegar konungshjónin taka á móti forsetahjónum sem koma með báti að gömlu tollbryggjunni Toldboden í Kaupmannahöfn. Þaðan halda hjónin saman með hestvagni til formlegrar móttökuathafnar við Amalíuborgarhöll,“ segir í tilkynningunni. 

Nánari upplýsingar um dagskrána má sjá hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert