Léttskýjað víða um land

Spáð er góðu veðri víða um land í dag.
Spáð er góðu veðri víða um land í dag. mbl.is/Styrmir Kári

Í dag verður norðaustlæg átt, víða 5 til 13 metrar á sekúndu og lítilsháttar él á norðaustanverðu landinu, en annars yfirleitt léttskýjað. Lægir síðdegis.

Skýjað verður með köflum og víða dálítil él á morgun, en snýst í austan og suðaustan 5-10 m/s með lítilsháttar slyddu eða rigningu suðvestantil seinnipartinn.

Hiti verður á bilinu 1 til 8 stig yfir daginn, mildast sunnantil.

Veðurvefur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert