Bílvelta á Vatnsenda

Ljósmynd af vettvangi.
Ljósmynd af vettvangi. Ljósmynd/Aðsend

Bifreið valt og endaði á hvolfi á Vatnsenda í Kópavogi á öðrum tímanum í dag. Einn er minniháttar slasaður.

Þetta segir Jónas­ Árna­son­, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborg­ar­svæðinu, í samtali við mbl.is. 

Lögregla var kölluð á vettvang ásamt sjúkrabíl. Aðeins einn var í bílnum og fór hann út úr bílnum að sjálfsdáðum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert