Stuðningur við flugvöll í Vatnsmýrinni hrynur

Reykjavíkurflugvöllur.
Reykjavíkurflugvöllur. mbl.is/Árni Sæberg

Þeim hefur fækkað til muna sem hlynntir eru því að Reykjavíkurflugvöllur verði framvegis í Vatnsmýrinni. Minnihluti Reykvíkinga, eða 38%, er hlynntur því að þar verði flugvöllurinn til frambúðar.

Þetta kemur fram í nýrri könnun Maskínu.

Ert þú hlynnt(ur) eða andvíg(ur/t) því að framtíðarstaðsetning Reykjavíkurflugvallar verði …
Ert þú hlynnt(ur) eða andvíg(ur/t) því að framtíðarstaðsetning Reykjavíkurflugvallar verði í Vatnsmýrinni? Graf/Maskína

48% hlynnt en voru 72% árið 2013

Þar segjast 48% aðspurðra á landsvísu vera hlynnt því að framtíðarstaðsetning Reykjavíkurflugvallar verði í Vatnsmýrinni.

24% eru andvíg og 29% virðast ekki hafa skoðun á staðsetningu vallarins.

Til samanburðar má nefna að árið 2013 sögðust 72% aðspurðra vera hlynnt því að flugvöllurinn yrði áfram í Vatnsmýrinni.

Graf/Maskína
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert