Svandís sest við hlið Bjarna

Svandís og Þórdís Kolbrún færa sig frá Sigurði Inga til …
Svandís og Þórdís Kolbrún færa sig frá Sigurði Inga til Bjarna. mbl.is/Karítas

Í framhaldi af kjöri Svandísar Svavarsdóttur innviðaráðherra sem formanns Vinstri grænna um helgina fór af stað heilmikill flutningur milli ráðherrastóla á Alþingi.

Fyrsti fundur Alþingis eftir landsfundinn hófst klukkan 15 í gær.

Samkvæmt upplýsingum frá Rögnu Árnadóttur skrifstofustjóra Alþingis situr forsætisráðherra áfram á hægri hönd forseta Alþingis en fjármála- og efnahagsráðherra á vinstri hönd forseta.

Svandís situr nú eftir breytingarnar við hlið Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra en þar hafði Guðmundur Ingi Guðbrandsson setið áður á meðan hann gegndi formennsku í VG. Svandís sat áður við hlið Sigurðar Inga Jóhannssonar fjármálaráðherra og þar áður við hlið Bjarna, á meðan hann gegndi embætti fjármálaráðherra.

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka