Bjarg byggir 40 nýjar íbúðir í Safamýri

Skóflustungan í dag.
Skóflustungan í dag. Ljósmynd/Jón Jónasson

Íbúðafélagið Bjarg mun reisa 40 leiguíbúðir á stórri lóð við Safamýri og Háaleitisbraut.

Einar Þorsteinsson borgarstjóri ásamt fulltrúum Bjargs, ASÍ, BSRB og verktaka tók fyrstu skóflustunguna í dag.

Íbúðirnar verða tilbúnar í mai árið 2026 gangi áætlanir Bjargs eftir og ráðgerir félagið að opna fyrir umsóknir næsta sumar, að því er segir í tilkynningu.

Hönnuðir eru A2F og Gríma arkitektar.
Hönnuðir eru A2F og Gríma arkitektar.

Byggð verða tvö fjögurra hæða fjölbýlishús og verða íbúðirnar tveggja til fimm herbergja. Staðsetningin er góð með tilliti til samgangna, þjónustu og tenginga við stofnbrautir, skóla og leikskóla. Gæludýrahald verður leyft í hluta íbúðanna. Hönnuðir eru A2F og Gríma arkitektar. Ferill verkfræðistofa, Kriston raflagnahönnun og ÍSTAK annast byggingarframkvæmdir. 

Fram kemur að Bjarg hafi byggt og afhent leigjendum rúmlega þúsund íbúðir og það hafi í undirbúningi, hönnunarferli eða í byggingu um 500 íbúðir. Af þessum 1.500 íbúðum séu um 1.000 í Reykjavík. Samstarf við Bjarg er hluti af húsnæðisáætlun Reykjavíkur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert