Þreyta á fasteignamarkaði: Haustið óvenju rólegt

Monika Hjálmtýsdóttir formaður Félags fasteignasala.
Monika Hjálmtýsdóttir formaður Félags fasteignasala.

Fasteignasala í haust hefur verið með rólegra mótinu og þreyta virðist vera komin á markaðinn. Fyrstu kaupendum hefur fækkað umtalsvert en þó er líf í kringum þær fasteignir sem er hægt að selja með hlutdeildarlánum.

Þetta segir Monika Hjálmtýsdóttir, formaður Félags fasteignasala, spurð út í stöðuna á fasteignamarkaðnum í dag.

Ástandið farið að bíta

„Maður finnur að það er komin smá þreyta á markaðinn. Það er farið að bíta svolítið þetta ástand,“ segir Monika og talar um ákveðinn hægagang á sölu fasteigna, sérstaklega miðað við árstíma.

„Eins og núna með haustinu kemur oft meiri hreyfing eftir sumartímann en salan hefur ekki aukist mikið,“ greinir hún frá.

Hægagangur hefur verið á sölu fasteigna.
Hægagangur hefur verið á sölu fasteigna. mbl.is/Kristinn Magnússon

Eftir að opnað var aftur fyrir umsóknir um hlutdeildarlán hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun í byrjun mánaðarins hefur þó komið kippur í tengslum við slíkar sölur og gæti það ýtt við markaðnum í heildina, segir hún.

Lækkun stýrivaxta litlu breytt

Stýrivextir Seðlabanka Íslands voru lækkaðir um 0,25 prósentustig í byrjun mánaðarins og var það í fyrsta sinn síðan í nóvember árið 2020 sem þeir lækkuðu. Standa þeir núna í 9 prósentum.

Monika segir þessa vaxtalækkun ekki hafa haft mikið að segja fyrir sölu á fasteignum. „Þetta snýst allt um væntingar. Ég hef ekki fundið fyrir því að þetta hafi ýtt við fólki á fasteignamarkaðnum. Það þarf meira til.“

Þörfin fyrir nýtt húsnæði er mikil.
Þörfin fyrir nýtt húsnæði er mikil. mbl.is/Árni Sæberg

Hærra verð í náinni framtíð

Mikill húsnæðisskortur hefur verið hér á landi og hefur eftirspurn fyrir vikið aukist.

„Það er gríðarlegur samdráttur í uppbyggingu á íbúðarhúsnæði sem mun hafa áhrif 2025, 2026 og 2027. Fyrir þá sem ætla að fresta fasteignakaupum núna þá mun það mjög líklega þýða hærra verð í náinni framtíð,“ bendir Monika á.

Hún hefur einnig áhyggjur af fyrstu kaupendum og óttast að þeir sem ekki geta keypt núna verði í enn verri stöðu eftir tvö ár.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert