Ráðherrar ríkisstjórnarinnar mættu til fundar á björtum en frostköldum degi við Hverfisgötu í Reykjavík í morgun.
Ljósmyndari mbl.is myndaði ráðherrafylkinguna er hún mætti til fundarins.
Eins og vanalega þá má búast við að mörg mál verði til umræðu á fundi dagsins, en mbl.is fylgist með og mun grípa ráðamenn þjóðarinnar tali.