Heppinn trompmiðaeigandi datt í lukkupottinn

Milljónaveltan gekk ekki út í október og því getur einn …
Milljónaveltan gekk ekki út í október og því getur einn ljónheppinn miðaeigandi unnið 60 milljónir í nóvemberútdrættinum. mbl.is/Golli

Heppinn trompmiðaeigandi datt heldur betur í lukkupottinn þegar dregið var í Happdrætti Háskóla Íslands í gærkvöldi.

Í tilkynningu frá Happdrætti Háskólans segir að vinningur að upphæð 500 þúsund krónur hafi komið á númerið hans en þar sem hann á trompmiða fimmfaldaðist sú upphæð og fær hann því 2,5 skattfrjálsar milljónir í sinn hlut. Þá hrepptu níu miðaeigendur eina milljón króna hver.

Potturinn var í allt 135 milljónir króna sem tæplega 4.000 heppnir miðaeigendur deildu á milli sín. Milljónaveltan gekk ekki út í október og því getur einn ljónheppinn miðaeigandi unnið 60 milljónir í nóvemberútdrættinum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert