Alvarlegt vinnuslys í Stykkishólmi

Alvarlegt vinnuslys varð í Stykkishólmi í gærmorgun.
Alvarlegt vinnuslys varð í Stykkishólmi í gærmorgun. mbl.is/Sigurður Bogi

Alvarlegt vinnuslys varð í Stykkishólmi í gærmorgun. Lögreglan á Vesturlandi er með málið til rannsóknar. 

Þetta staðfestir Ásmundur Kristinn Ásmundsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Vesturlandi, í samtali við mbl.is. 

Að sögn Ásgeirs Erlendssonar, upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar, var þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út til að sinna sjúkraflutningi vegna slyssins klukkan 10 í gær. Hún var afturkölluð um klukkan 10.30.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert