Síðdegis í gær barst lögreglu tilkynning um slys á buggy-bíl vestan við Kjalveg, við Hvítárvatn. Talsverður viðbúnaður var vegna slyssins en ásamt lögreglu voru sjúkralið, þyrla Landhelgisgæslu, björgunarsveitir og vettvangsliðar í uppsveitum Árnessýslu kölluð til. Einn slasaður einstaklingur var fluttur með þyrlu á Landspítala í Fossvogi.
Þetta kemur fram í færslu lögreglunnar á Suðurlandi á Facebook.
Síðdegis á föstudag varð árekstur tveggja bifreiða á gatnamótum Suðurlandsvegar og Skeiðavegar. Einn var fluttur með sjúkrabifreið til aðhlynningar á heilbrigðisstofnun.
Þá hafa fjögur önnur umferðaróhöpp verið tilkynnt til lögreglunnar á Suðurlandi, en enginn slasaðist í þeim. Frá því á föstudag hafa nítján ökumenn verið kærðir fyrir of hraðan akstur. Sá sem ók hraðast var á 151 kílómetra hraða á Mýrdalssandi. Einnig voru tveir ökumenn stöðvaðir fyrir réttindaleysi til aksturs. Þá hafa þrír ökumenn verið kærðir fyrir akstur með héluðum rúðum.
„Síðustu daga hafa verið frostnætur og rúður bifreiða því verið hélaðar. Ökumenn þurfa að huga vel að því að skafa vel af rúðum áður en lagt af stað, til að tryggja útsýni við akstur,“ segir í færslu lögreglunnar.
Síðdegis í gær barst tilkynning um slys á svokölluðum „buggy“ bíl vestan við Kjalveg, við Hvítárvatn. Talsverður...
Posted by Lögreglan á Suðurlandi on Sunnudagur, 13. október 2024