Slasaðist á byggy-bíl

Slysið átt sér stað við Kjalveg, við Hvítárvatn.
Slysið átt sér stað við Kjalveg, við Hvítárvatn. mbl.is/Sigurður Bogi

Síðdegis í gær barst lögreglu tilkynning um slys á buggy-bíl vestan við Kjalveg, við Hvítárvatn. Talsverður viðbúnaður var vegna slyssins en ásamt lögreglu voru sjúkralið, þyrla Landhelgisgæslu, björgunarsveitir og vettvangsliðar í uppsveitum Árnessýslu kölluð til. Einn slasaður einstaklingur var fluttur með þyrlu á Landspítala í Fossvogi.

Þetta kemur fram í færslu lögreglunnar á Suðurlandi á Facebook.

Síðdegis á föstudag varð árekstur tveggja bifreiða á gatnamótum Suðurlandsvegar og Skeiðavegar. Einn var fluttur með sjúkrabifreið til aðhlynningar á heilbrigðisstofnun.

Kærðir fyrir akstur með héluðum rúðum

Þá hafa fjögur önnur umferðaróhöpp verið tilkynnt til lögreglunnar á Suðurlandi, en enginn  slasaðist í þeim. Frá því á föstudag hafa nítján ökumenn verið kærðir fyrir of hraðan akstur. Sá sem ók hraðast var á 151 kílómetra hraða á Mýrdalssandi. Einnig voru tveir ökumenn stöðvaðir fyrir réttindaleysi til aksturs. Þá hafa þrír ökumenn verið kærðir fyrir akstur með héluðum rúðum.

„Síðustu daga hafa verið frostnætur og rúður bifreiða því verið hélaðar. Ökumenn þurfa að huga vel að því að skafa vel af rúðum áður en lagt af stað, til að tryggja útsýni við akstur,“ segir í færslu lögreglunnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert