Fregnir af stjórnarslitum hafa vakið athygli erlendis og hafa fjölmiðlar víða á heimskringlunni greint frá því að stefnt sé að skyndikosningum á Íslandi í nóvember.
Eins og fram hefur komið tilkynnti Bjarni Benediktsson forsætisráðherra í dag að ríkisstjórnarsamstarfi Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og Vinstri grænna hefði verið slitið.
„Sundrung um innflytjendamál og orkumál fær ríkistjórn Íslands til að segja af sér,“ segir í fyrirsögn danska dagblaðsins Politiken.
„Stjórnarkreppa í Íslandi,“ segir í fyrirsögn færeyska miðilsins in.fo.
Norska blaðið Aftenposten setur Yazan Tamimi í brennidepil og skrifar að 12 ára drengur með vöðvarýrnunarsjúkdóm hafi hjálpað við að setja síðasta dropann í mælinn, eða „fá bikarinn til að flæða yfir“ eins og Norðmennirnir orða það.
Eins og fram hefur komið hefur stöðvun dómsmálaráðherra að fyrirhuguðum brottflutningi Yazans verið eitt af þrætueplum stjórnarinnar undanfarnar vikur en Yazan hefur nú hlotið alþjóðlega á Íslandi.
Aðspurður í dag sagði Bjarni að mál Yazans hafi ekki verið dropann sem fyllti mælinn og leiddi til stjórnarslita þó það hafi vissulega reynst stjórninni erfitt.
Sænska blaðið Aftonbladet greinir einnig frá stjórnarslitunum og tekur fram að búist sé við kosningum 30. nóvember að því gefnu að Halla Tómasdóttir forseti Íslands samþykki beiðni Bjarna um að leysa upp þingið.
Í fyrirsögn þýska miðilsins Die Presse stendur: „Úrslitaatriðin [voru] hælisleitendur og orka: Ríkisstjórnarsamstarfið á Íslandi sprungið.“
Breska stórblaðið Guardian greinir einnig frá skyndikosningunum í nóvember. Blaðið kveðst hafa það eftir Bjarna að ríkistjórnin hafi sundrast vegna óeiningar um „utanríkismál og hælisleitendur“.
Ítalska fréttaveitan ANSA skrifar einnig um stjórnarslitin. Miðillinn segir reyndar að ríkisstjórnin hafi verið við völd síðan 2021 en stjórn Bjarna Benediktssonar var aftur á móti mynduð í apríl, á meðan flokkarnir þrír hafa verið við stjórnvöllinn síðan 2017.
Asískir miðlar greina einnig frá, þar á meðal kínverski miðillinn Chinaplus og indverski miðillinn Faribad Latest News.