Skúli mættur í dómsal

Skúli Mogensen í dómsal í morgun.
Skúli Mogensen í dómsal í morgun. mbl.is/Karítas

Fjöl­mennt er í sal 101 í Héraðsdómi Reykja­vík­ur í dag þar sem aðalmeðferð í ell­efu rift­un­ar- og skaðabóta­mál­um gegn stjórn­end­um WOW air og trygg­inga­fé­lög­um hófst klukk­an hálf níu.

Á meðal þeirra sem eru mætt í dómsal eru Skúli Mo­gensen, stofn­andi og for­stjóri WOW air og nú­ver­andi eig­andi sjó­baðanna í Hvamms­vík, og Liv Bergþórs­dótt­ir, fyrr­ver­andi stjórn­ar­formaður og nú­ver­andi for­stjóri Bi­oef­fect. 

Skjöl máls­ins mátti sjá í stór­um bunk­um nærri þeim tíu lög­mönn­um sem eru í dómsal.

Gögn málsins eru þúsundir blaðsíðna.
Gögn máls­ins eru þúsund­ir blaðsíðna. mbl.is/​Karítas

Mál­in eiga sér lang­an aðdrag­anda en þau snúa öll að greiðslum sem áttu sér stað fyr­ir gjaldþrot WOW air í mars 2019.

Farið er fram á rift­un greiðslna til kröfu­hafa og að for­stjóri eða stjórn­end­ur séu dæmd­ir til greiðslu skaðabóta sem sam­svara fjár­hæð rift­un­ar­inn­ar, þ.e.a.s. hátt í tveir millj­arðar.

Um­rædd­ir stjórn­end­ur eru auk Skúla og Liv, Helga Hlín Há­kon­ar­dótt­ir og Davíð Más­son stjórn­ar­menn. Þá eru Eurocontrol, DUAL Corporate Risks Lim­ited, Li­berty Mutual Ins­urance Europe Lim­ited, Ev­erest Syndica­te 2786 at Lloyd’s og Ev­erest Syndica­te, Har­dy Syndica­te 382 at Lloyd’s og QBE UK Lim­ited einnig stefnt.

Skýrslu­taka yfir Skúla fer fram í dag og þá er áætlað að skýrslu­tök­um verði haldið áfram næstu fjóra daga. Á föstu­dag­inn mun mál­flutn­ing­ur hefjast fyr­ir fyrsta málið og halda áfram næstu vik­urn­ar fyr­ir öll hin tíu.

Greint verður frá skýrslu­töku yfir Skúla á mbl.is síðar í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert