Í dag er spáð vaxandi norðaustanátt, 13 til 20 metrar á sekúndu verða með suðausturströndinni með morgninum en annars 5-13 m/s. Hægari vindur síðdegis.
Rigning verður eða slydda með köflum, en úrkomulítið á Vesturlandi. Mun hægari suðaustantil í kvöld.
Breytileg átt verður, víða 3-10 m/s á morgun. Skýjað og sums staðar dálítil rigning eða jafnvel slydda.
Hiti verður á bilinu 1 til 9 stig yfir daginn, svalast um landið norðvestanvert.