Svandís útilokar þátttöku VG í starfsstjórn

Svandís Svavarsdóttir, formaður Vinstri grænna.
Svandís Svavarsdóttir, formaður Vinstri grænna. mbl.is/Arnþór

Svandís Svavarsdóttir, formaður Vinstri grænna, segir þingmenn flokksins ekki munu taka þátt í starfsstjórn undir þessum kringumstæðum.

Þetta segir Svandís í kjölfar þess að Halla Tómasdóttir forseti tilkynnti að hún vildi að ríkisstjórnin sæti áfram sem starfsstjórn fram að kosningum 30. nóvember.

„Forsætisráðherra, Bjarni Benediktsson, hefur beðist lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt. Því liggur fyrir að ríkisstjórnin hefur lokið erindi sínu. Samtöl leiddu ekki til annarrar lausnar á þeirri stöðu sem upp er komin og það er niðurstaða þingflokks VG að taka ekki þátt í starfsstjórn undir þessum kringumstæðum,“ skrifar Svandís í yfirlýsingu á Facebook.

Ráðherrar Vinstri grænna verða almennir þingmenn

„Ráðherrar VG verða frá og með morgundeginum almennir þingmenn og munu nálgast þau brýnu mál sem nauðsynlegt er að ljúka á Alþingi af ábyrgð og skyldurækni. Ég hef fulla trú á þinginu, það hefur áður tekist á við flókna stöðu.“

Svandís segir að kosningar 30. nóvember séu næsta skref, að loknu samtali við kjósendur um land allt um framtíðina og sýnina fyrir Ísland.

„Ákall almennings eftir lausnum, vegna verðbólgu og vaxta, í efnahagsmálum, húsnæðismálum, í almannaþjónustu og fleiri mikilvægum málaflokkum heyrist skýrt. Við í VG teljum að það sé enginn lausn önnur en öflug félagshyggja, ekki séu aðrar leiðir færar til þess að takast á við raunverulegar áskoranir samtímans,“ skrifar formaður Vinstri grænna.

Segir erindið skýrt

„Í anda félagslegs réttlætis, femínisma, friðar og grænna stjórnmála höldum við á fund kjósenda.

Erindi VG er skýrt, við munum gera okkar til þess að vinstrið eigi öfluga rödd á Alþingi Íslendinga fáum við til þess umboð. Ég hlakka til! Sjáumst þarna úti.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert