Oddný G. Harðardóttir, oddviti Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi, ætlar ekki að sækjast eftir sæti á framboðslista flokksins í kjördæminu.
Þessu greinir Oddný frá á Facebook og segist hafa melt ákvörðunina með fjölskyldu sinni í þó nokkurn tíma, „og er nú ákveðin í að þetta verði mitt síðasta kjörtímabil á þingi“.
„Ég þakka þeim traustið sem hafa hvatt mig til að bjóða mig fram að nýju og þakka stuðning og samveru í pólítíkinni í bráðum 16 ár.“
Oddný segist þó ekki vera kveðja alveg strax þar sem hún muni gegna þingmennsku fram að næstu kosningum sem eru boðaðar 30. nóvember.