Óli Björn Kárason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi, ætlar ekki að sækjast eftir endurkjöri í komandi kosningum.
„Ákvörðunin hefur legið fyrir í nokkurn tíma en fyrr í dag gerði ég þingflokki okkar grein fyrir henni,“ skrifar hann í grein á vef Sjálfstæðisflokksins en Óli Björn var þingflokksformaður frá kosningum 2021 fram í september 2023.
„Ég mun gera mitt til að tryggja góðan árangur [í kosningum 30. nóvember]. Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins þurfa að fylgja hugmyndum eftir af ástríðu og sannfæringu. Sýna staðfestu í baráttunni fyrir frelsi einstaklingsins og fullveldi landsins. Þeirri baráttu legg ég lið í öflugri bakvarðarsveit Sjálfstæðismanna um allt land.“
Óli Björn tilkynnir þetta skömmu eftir að Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, varaformaður flokksins, lýsti því yfir að hún gæfi kost á sér í 2. sæti á lista flokksins í Suðvesturkjördæmi – en ekki í en Norðvesturkjördæmi sem er hennar heimavöllur.
Í prófkjörinu mun hún því keppa við Jón Gunnarsson, fyrrv. dómsmálaráðherra, sem hyggst einnig bjóða sig fram í 2. sæti. Búast má við því að Bjarni Benediktsson formaður sækist eftir 1. sæti í kjördæminu.
Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, segist einnig íhuga alvarlega að bjóða sig fram á lista flokksins í kjördæminu, og þá ofarlega.
Það er því ljóst að færri komast að en vilja í prófkjöri flokksins í Suðvesturkjördæmi, sem hefur á liðnum árum verið helsti vígvöllur sjálfstæðismanna.
Í greininni þakkar Óli samflokksmönnum sínum fyrir samstarf síðustu ára, og segist í starfi sínu hafa byggt á hugmyndafræði sjálfstæðisstefnunnar.
„Og það hefur á stundum reynt á þolrifin,“ bætir hann við.
Landsmenn ganga til kosninga þann 30. nóvember og hefur Sjálfstæðisflokkurinn átt á brattann að sækja að undanförnu samkv. skoðanakönnunum. Óli telur reyndar flokkinn hafa náð vopnum sínum aftur.
Fréttin hefur verið uppfærð.