Ríkisráðsfundur verður haldinn klukkan 18 á morgun á Bessastöðum.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá skrifstofu forseta.
Þá mun ríkisstjórn Vinstri grænna, Framsóknar og Sjálfstæðisflokksins ljúka störfum og starfsstjórn tveggja síðarnefndu flokkanna taka við.
Bjarni Benediktsson verður þá matvæla-, félags- og vinnumarkaðsráðherra, til viðbótar við embætti forsætisráðherra sem hann gegnir þegar.
Sigurður Ingi verður innviðaráðherra en hann er þegar ráðherra fjármála.
Kosningar hafa verið boðaðar 30. nóvember.