Sviptur ökuréttindum á ríflega tvöföldum hámarkshraða

Ökumaður sem keyrði á 140 km/klst. hraða var sviptur ökuréttindum …
Ökumaður sem keyrði á 140 km/klst. hraða var sviptur ökuréttindum til bráðabirgða. Ljósmynd/Colourbox

Tvær bifreiðar eru óökufærar eftir árekstur í hverfi 105 í borginni. Engin slys urðu þó á fólki.

Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Lögregla stöðvaði ökumann á 140 km/klst. hraða á götu þar sem hámarkshraði er aðeins 60 km/klst. Viðkomandi var kærður fyrir of hraðan akstur, sviptur ökuréttindum til bráðabirgða og á von á sekt.

Tilkynnt var um innbrot í hverfi 104. Ekki eru veittar frekari upplýsingar í dagbók lögreglu um atvikið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert