Embætti landsbókavarðar laust til umsóknar

Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn.
Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn. Morgunblaðið/Sigurður Bogi

Leitað er nú eftir faglegum leiðtoga til að leiða stærstu þekkingarveitu þjóðarinnar, Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá menningar- og viðskiptaráðuneytinu.

Segir þar að Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn sé þjóðbókasafn Íslands og bókasafn Háskóla Íslands sem hafi það meginmarkmið að safna öllum íslenskum gögnum, varðveita þau, skrá og flokka.

Segir enn fremur að safnið sé öflugur samstarfsaðili Háskóla Íslands og styðji við íslenskar rannsóknir með fjölbreyttum hætti.

Gegnir það forystuhlutverki hvað varðar þróun og nýsköpun á sviði varðveislu og stafrænnar endurgerðar og er í fararbroddi um miðlun og aðgengi að stafrænu efni fyrir landsmenn.

Þarf að búa yfir metnaði og framsýni 

„Landsbókavörður þarf að búa yfir metnaði og framsýni til að leiða Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn til framtíðar. Landsbókavörður leiðir starfsemi safnsins og annast daglegan rekstur og stjórn þess, undirbýr starfs- og fjárhagsáætlun og stýrir mannauði safnsins. Gerð er krafa um menntun á háskólastigi og staðgóða þekkingu á starfssviði safnsins. Framhaldsmenntun á háskólastigi er kostur. Við mat á umsækjendum er horft til kjörmyndar stjórnenda út frá stjórnendastefnu ríkisins,“ segir í tilkynningunni.

Kemur fram að menningar- og viðskiptaráðherra skipar í embætti landsbókavarðar til fimm ára frá og með 1. mars 2025, að fenginni umsögn stjórnar safnsins og að umsóknum skuli fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá á íslensku ásamt kynningarbréfi þar sem fram kemur núverandi starfsheiti, ástæða umsóknar og lýsing á því hvernig viðkomandi uppfyllir hæfniskröfur.

Umsóknarfrestur til 11. nóvember

Þá er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um og er starfshlutfall 100%. Umsóknarfrestur er til og með 11. Nóvember.

Þá kemur fram að frekari upplýsingar veitir Sigrún Brynja Einarsdóttir Ráðuneytisstjóri á netfangið sigrun.brynja.einarsdottir@mvf.is og í síma 5459800.

„Um frekara hlutverk og starfsemi safnsins vísast nánar til ákvæða laga um Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn nr. 142/2011, sjá einnig reglugerð um safnið nr. 170/2014, lög um skylduskil nr. 20/2002, reglugerð um skylduskil til safna nr. 982/2003 og bókasafnalög nr. 150/2012.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert