G. Sigríður gefur kost á sér: „Áfram gakk stelpa“

Sirrý er komin í framboð.
Sirrý er komin í framboð. Ljósmynd/Aðsend

G. Sigríður Ágústsdóttir, eða Sirrý, hefur ákveðið að gefa kost á sér í 2. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi þingkosningar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sigríði.

Hún er fædd og uppalin á Bíldudal og býr í dag í Reykjavík. 

Reimar á sig gaddaskóna

Hún kveðst brenna fyrir heilbrigðismálefnum og vill stuðla að sterku og öflugu atvinnulífi um land allt.

„Sterkt og fjölbreytt atvinnulíf er að sjálfsögðu forsenda þess að við getum byggt upp sterka innviði og bætt samfélagið okkar. Verðmætasköpun spilar stóran þátt í því og bættar samgöngur er lykilatriði í uppbyggingu og atvinnurekstri,“ er haft eftir henni í tilkynningunni.

Hún segir fjölmargar krefjandi áskoranir vera fyrir komandi kjörtímabil. Sækja þurfi fram með festu og sterkri sókn á áframhaldandi atvinnuuppbyggingu. Þá fyrst sé hægt að styrkja innviði og tryggja íbúum öryggi í heimabyggð.

„Áfram gakk stelpa, hefði pabbi sagt. Og með það í veganesti reima ég á mig gaddaskóna.“

Teitur og Ólafur mætast í oddvitaslag

Ólaf­ur Ad­olfs­son, lyfsali og göm­ul knatt­spyrnu­kempa með Skaga­mönn­um hef­ur ákveðið að gefa kost á sér til for­ystu Sjálf­stæðis­flokks­ins í Norðvest­ur­kjör­dæmi.

Þá hefur þingmaðurinn Teitur Björn Einarsson tilkynnt að hann muni sækjast eftir oddvitasæti í kjördæminu líka. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert