Í vörslu þjóðkirkjunnar er tíbeskt helgirit frá 15. öld, sem séra Gunnar Benediktsson fékk að gjöf í Kína árið 1959.
Handritið, sem hefur sérstakt menningargildi, var afhent kirkjunni til varðveislu.
Er það varðveitt í skríni sem Gunnar fékk Eið Hermundarson, trésmíðameistara í Hveragerði, til að smíða. Nú stendur til að gera það aðgengilegt almenningi, en varðveisla þess kallar á vandaða umhirðu vegna aldurs og ástands.
Hægt er að nálgast umfjöllunina í heild sinni í Morgunblaðinu í dag.