Réðst á hótelstarfsfólk í Reykjavík

Hann gistir nú í fangaklefa.
Hann gistir nú í fangaklefa. Eggert Jóhannesson

Maður réðst í gær á starfsfólk hótels í Reykjavík. Þegar lögregla kom á vettvang voru öryggisverðir með viðkomandi. Hann gistir nú fangaklefa þar til hægt verður að ræða við hann.

Frá þessu er greint í dagbók lögreglu þar sem farið er yfir mál sem komu á borð lögreglu frá klukkan 17 í gær til 5 í morgun.

Ekki er tekið fram hvort viðkomandi hafi verið gestur hótelsins.

Eldur í Hafnarfirði

Lögregla hafði afskipti af nokkrum ökumönnum grunaðir um akstur undir áhrifum.

Þá var tilkynnt um eld í gámi í Hafnarfirði. Um var að ræða minniháttar eld og gekk greiðlega að ráða niðurlögum hans.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert