Sex hinna núverandi eldri þingmanna hafa ákveðið að gefa kost á sér á ný í komandi alþingiskosningum. Níu alþingismenn munu að líkindum verða 67 ára eða eldri á næsta kjörtímabili. Morgunblaðið kannaði hug þeirra til áframhaldandi þingsetu.
Tómas A. Tómasson, þingmaður Flokks fólksins, er aldursforseti á Alþingi en Tómas hefur setið á þingi síðan 2021. Hann segist í samtali við Morgunblaðið sjaldan hafa verið betri og er til í slaginn áfram. Tómas verður 79 ára gamall undir lok næsta kjörtímabils að því gefnu að kjörtímabilinu ljúki að fjórum árum liðnum.
Annar reynslubolti, Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gefur einnig kost á sér í komandi kosningum.
Ásmundur verður 72 ára gamall árið 2028 en hann hefur verið þingmaður Suðurkjördæmis frá árinu 2013.
Greint var frá því í gær að samflokksmaður Tómasar, Guðmundur Ingi Kristinsson, hygðist gefa kost á sér á meðan heilsan leyfir. Hann verður 73 ára á næsta kjörtímabili og hefur setið á Alþingi síðan árið 2017.
Sömuleiðis mun Jón Gunnarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins hafa tilkynnt kjördæmisráði að hann gefi kost á sér en Jón verður 72 ára á næsta kjörtímabili.
Jón hefur verið alþingismaður Suðvesturkjördæmis síðan árið 2007 en auk þess var hann samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra árið 2017, innanríkisráðherra frá 2021 til 2022 og dómsmálaráðherra á árunum 2022 til 2023.
Guðbrandur Einarsson úr Viðreisn gefur kost á sér fái hann stuðning til þess. Hann verður sjötugur undir lok næsta kjörtímabils en Guðbrandur hefur verið alþingismaður Suðurkjördæmis frá árinu 2021.
Þá mun Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, taka slaginn áfram en Inga verður 69 ára haustið 2028. Hún hefur verið alþingismaður Reykjavíkurkjördæmis suður síðan árið 2017.