Halla Hrund leiðir Framsókn: Sigurður Ingi í 2. sæti

Halla Hrund tekur 1. sæti á lista flokksins í Suðurkjördæmi. …
Halla Hrund tekur 1. sæti á lista flokksins í Suðurkjördæmi. Sigurður Ingi Jóhannsson verður í öðru sæti. Samsett mynd

Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, tilkynnti um það á Facebook-síðu sinni að Halla Hrund Logadóttir, forsetaframbjóðandi og fyrrum orkumálastjóri, muni leiða flokkinn í Suðurkjördæmi. 

Enn fremur að hann muni taka annað sætið á lista flokksins í kjördæminu. 

Leggur sjálfan sig að veði 

„Ég hef því tekið ákvörðun um að leggja til við kjörstjórn Framsóknar í Suðurkjördæmi að Halla Hrund Logadóttir, starfandi orkumálastjóri, verði í fyrsta sæti á lista Framsóknar fyrir Alþingiskosningarnar 30. nóvember. Sjálfur býð ég mig fram í annað sæti.

Með þessari tillögu legg ég sjálfan mig undir. Enda lít ég svo á að sá formaður sem ekki leggur sjálfan sig að veði fyrir flokkinn sinn sé ekki sannur leiðtogi. Ég býð Höllu Hrund velkomna í öflugan hóp Framsóknarfólks. Ég er fullviss um að þessi nýja rödd Framsóknar og samvinnustefnunnar muni hljóma sterk fyrir kjördæmið og landið allt á Alþingi Íslendinga,“ skrifar Sigurður Ingi í færslu. 

Hvorki hægri né vinstri 

Halla Hrund birti samhliða færslu á Facebook-síðu sinni þar sem hún tjáir sig um ástæður þess að hún fer fram fyrir Framsóknarflokkinn. 

„Að mínu mati er hann hvorki hægri né vinstri. Ég tengi flokkinn einnig sterkt við að vera einfaldlega eins og Íslendingur sem vill vinna ötullega að fyrir landið sitt enda er Framsókn elsti stjórnmálaflokkur landsins. Hann er flokkur sem leggur áherslu á samvinnu og málamiðlanir. Það skal vera nýr tónn stjórnmálanna og þannig vil ég vinna í Framsókn fyrir Ísland,“ segir Halla Hrund.

Fréttin hefur verið uppfærð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka