Rúta lokaði Hvalfjarðargöngunum

Mikil röð hefur myndast við Hvalfjarðargöng.
Mikil röð hefur myndast við Hvalfjarðargöng. Ljósmynd/Aðsend

Hvalfjarðargöng eru lokið sem stendur. Mikil röð hefur myndast við göngin vegna þessa eins og sjá má þessari mynd sem vegfarandi tók.

Uppfært 10:49: Búið er að opna göngin að nýju. Þau voru lokuð í um 50 mínútur vegna rútu sem hafði bilað í göngunum. Kalla þurfti til dráttarbíla sem fjarlægðu rútuna en erfiðlega reyndist að koma henni út og fyrir vikið var lokun óvenju löng að sögn G. Péturs Matthíassonar, upplýsingafulltrúa Vegagerðarinnar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert