Héraðsdómur Austurlands hefur fallist á kröfu lögreglustjórans á Austurlandi um gæsluvarðhald yfir einstaklingi sem grunaður er um líkamsárás á Vopnafirði á miðvikudag.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi í kvöld.
Fyrr í dag var tilkynnt um að einstaklingurinn hefði verið handtekinn á miðvikudag grunaður um alvarlega líkamsárás gagnvart fyrrum sambýliskonu.
Eftir því sem rannsókn málsins vatt fram var ákvörðun tekin um að krefjast gæsluvarðhalds.
Var sú krafa samþykkt og var einstaklingurinn úrskurðaður í gæsluvarðhald til 4. nóvember.