Bjarkey hyggst hætta þingmennsku

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir ætlar ekki að halda áfram þingmennsku.
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir ætlar ekki að halda áfram þingmennsku. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, fráfarandi matvælaráðherra, sem hefur verið varaþingmaður og þingmaður VG í 20 ár ætlar ekki að bjóða sig fram til alþingiskosninga sem fram fara í nóvember.

Þetta tilkynnti hún á Facebook-síðu sinni fyrir skemmstu.

„Þetta hefur verið afar skemmtilegur tími og ég hef notið þess að hitta fjöldann allan af fólki og mynda góð tengsl víða í kjördæminu í gegnum árin. Það tel ég vera afar mikilvægt enda oft snúið að fylgja eftir mörgum þeim málum sem við landsbyggðarfólk þekkjum svo vel og kallar á sterkar raddir inn á Alþingi. Ég tel að ég hafi sinnt kjördæminu af alúð sem og landinu öllu þessi ár sem ég hef verið á þingi,“ segir Bjarkey.

Hlutirnir ganga hægar en við vildum 

„Síðustu sex mánuði, sem matvælaráðherra, hef ég öðlast enn frekari skilning á aðstæðum ýmissa atvinnugreina. Ég setti af stað talsverða vinnu í matvælaráðuneytinu er varðar dýravelferðarmál sem ég tel að við þurfum að taka betur utanum. Ég fundaði nú í sumar með mörgum bændum og hringdi í aðra sem hafa átt afar erfiða tíma sökum veðurfars. Ég hitti líka fjölmarga trillukarla og var með fyrirhugaðar breytingar á strandveiðum í vinnslu sem og önnur mál er tengjast sjávarútveginum. Aukið gagnsæi og eignarhald var á meðal þeirra.

Ég setti upp skrifstofur víða um land og bauð fólki að hitta mig og eiga beint samtal og var því afar vel tekið. Ég tel að þannig þurfi ráðherrar að vinna í meira mæli – fara til fólksins.
Pólitík er sannarlega snúin og hlutirnir ganga oft hægar en við vildum. Það eru flóknir tímar framundan og það verður vandasamt að vinna úr þeim viðfangsefnum sem ný ríkisstjórn og þing þurfa að takast á við. Ég óska þeim velfarnaðar í störfum sínum,“ segir Bjarkey í færslu á Facebook-síðu sinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert