Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, var rétt í þessu sjálfkjörinn oddviti Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi.
Fjölmennur fundur kjördæmisráðs fer nú fram í Valhöll.
Kjördæmisráðið samþykkti fyrr í dag að viðhafa röðun við efstu 4 sæti á framboðslistanum og var Bjarni einn í kjöri um 1. sætið.