Rósa í fjórða sæti í Suðvesturkjördæmi

Rósa Guðbjartsdóttir.
Rósa Guðbjartsdóttir. mbl.is/Sigurður Bogi

Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri í Hafnarfirði, tók fjórða sætið á lista Sjálfstæðismanna í Suðvesturkjördæmi. Hún bauð sig einnig fram í þriðja sæti en Bryndís Haraldsdóttir verður þar.

Í framboði til fjórða sætis voru einnig þau Ragnhildur Jónsdóttir,forseti bæjarstjórnar á Seltjarnarnesi, Sigþrúður Ármann, varaþingmaður flokksins og Vilhjálmur Bjarnason.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert