Þórdís tók 2. sætið og Jón á útleið

Jón Gunnarsson og Þórdís Kolbrún.
Jón Gunnarsson og Þórdís Kolbrún. Samsett mynd/mbl.is/Óttar/Kristinn

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, skipar 2. sæti lista Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi. 

Hún hafði betur gegn Jóni Gunnarssyni. Atkvæðin skipuðust þannig að Þórdís fékk 206 atkvæði og Jón 134 atkvæði.

Jón tilkynnti á fjölmennum fundi kjördæmisráðs sem fer nú fram í Valhöll að hann ætli ekki að gefa kost á sér í 3. sæti. 

Bjarni Benediktsson var sjálf­kjör­inn odd­viti ­flokks­ins í kjör­dæminu.

Frá fundinum í Valhöll.
Frá fundinum í Valhöll. mbl.is/Ólafur Árdal

Fréttin hefur verið uppfærð. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert