Óvenjuleg virkni: Margir hverir öflugri en áður

Meðal þeirra breytinga sem hafa orðið er að Strokkur gýs …
Meðal þeirra breytinga sem hafa orðið er að Strokkur gýs nú oftar og kröftugar en áður og eru gosin allt að 30 metrar. Myndin er úr safni. mbl.is/Árni Sæberg

Óvenjulegrar og aukinnar hveravirkni hefur orðið vart á hverasvæðinu við Geysi í Haukadal. Hefur hún vakið athygli sérfræðinga og heimamanna.

Frá þessu greinir Veðurstofan í tilkynningu, en bera fór á aukningunni á laugardag.

Hefur fulltrúi frá Umhverfisstofnun staðfest að margir hverir á svæðinu hafi tekið við sér og séu nú mun kröftugri en fyrr.

Strokkur hærri og kröftugri en áður

Meðal þess sem sérstaka athygli hefur vakið er að Strokkur hefur verið óvenju virkur undanfarna daga og eru gosin nú hærri og kröftugri en áður. Þá hafa gosin jafnvel verið svo kröftug að grjót og hverahrúður hafa þeyst upp með gosunum.

Hverinn gýs nú oftar en áður, með strókum sem ná allt að 30 metra hæð. Engar breytingar hafa þó orðið á Geysi sjálfum, að því er segir í tilkynningu Veðurstofunnar.

Fylgst er með stöðunni og reynt að greina orsök þessarar auknu virkni, en sérfræðingar Umhverfisstofnunar, Veðurstofunnar og almannavarna fóru yfir stöðuna á fundi nú síðdegis í dag.

Biðlar til ferðamanna að fara varlega

Tekið er fram að jarðhitasvæði séu mjög breytileg og er alltaf einhver hætta til staðar í nágrenni þeirra vegna sjóðandi vatns og gufu.

Veðurstofan biðlar til ferðamanna á Geysissvæðinu að fara varlega og halda sig í öruggri fjarlægð frá hverunum og fylgja fyrirmælum Umhverfisstofnunar sem hefur umsjón á svæðinu.

Í meðfylgjandi myndskeiði, sem tekið var af Degi Jónssyni landverði á svæðinu, af hvernum Blesa, sést meðal annars þessi aukna virkni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert