Formaður Leigjendasamtakanna verður oddviti

Guðmundur Hrafn Arngrímsson, formaður Leigjendasamtakanna, skellir sér í framboð.
Guðmundur Hrafn Arngrímsson, formaður Leigjendasamtakanna, skellir sér í framboð.

Uppstillingarnefnd Sósíalistaflokksins hefur tilnefnt Guðmund Hrafn Arngrímsson, formann Leigjendasamtakanna, sem oddvita fyrir Sósíalista í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi þingkosningar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sósíalistaflokknum.

„Það er fullreynt með frjálshyggju við hagstjórn og skipulag samfélagsins. Burðarviðir þess grotna niður sem aldrei fyrr þar sem óöryggi, afkomuótti og örvænting mæta stórum hópi samborgara okkar í dagrenningu hvern einasta dag,“ er haft eftir Guðmundi í tilkynningu.

Fimm barna faðir

Guðmundur er fimm barna faðir ættaður úr Reykhólasveit og Árneshreppi á Ströndum en alinn upp í Bolungarvík.

Undanfarin ár hefur Guðmundur unnið að mestu við torf- og grjóthleðslur ásamt ráðgjöf við landslagshönnun en frá árinu 2021 hefur hann verið formaður Leigjendasamtakanna

„Sósíalistar hafa mótað framsækna og trúverðuga stefnu í öllum helstu hagsmunamálum almennings þar sem markmiðið er að skapa félagslegt, fjárhagslegt og menningarlegt réttlæti fyrir alla íbúa landsins,“ er haft eftir Guðmundi.

Heiður að fá að vinna stefnu Sósíalista fylgi

Í tilkynningunni segir að Guðmundi finnist það vera heiður að fá að vinna stefnu Sósíalista fylgi á sínum heimaslóðum í komandi alþingiskosningum.

Hann kveðst þekkja kjördæmið vel og verið heppinn að hafa bæði unnið og átt aðsetur í fjölmörgum héruðum þess.

„Við þurfum að tryggja að öryggi og velferð verði í öndvegi svo skapa megi heilbrigt og samheldið samfélag. Sósíalistar hafna því að ótti, sundrung, örbirgð eða hnignun verði veganestið inn í framtíðina eins og valdaflokkar í íslenskum stjórnmálum hafa unnið ötullega að meira og minna alla þessa öld,“ er haft eftir Guðmundi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert