Landsvirkjun þarf að grípa til skerðinga

Ljósmynd/Colourbox

Landsvirkjun hefur tilkynnt stórnotendum á norður- og austurhluta landsins að grípa verði til skerðinga á afhendingu raforku til þeirra frá 23. nóvember.

Á morgun, 24. október, taka jafnframt gildi áður boðaðar skerðingar hjá stórnotendum á suðvesturhluta landsins að því er Landsvirkjun greinir frá.

Ekki hægt að sjá hversu lengi skerðingarnar muni standa

Tekið er fram, að ekki sé hægt að sjá fyrir hversu lengi þessar skerðingar muni standa, en þó megi reikna með að það verði fram á næsta vor. Þá hafi Landsvirkjun jafnframt hvatt stórnotendur til að draga úr álagi og skoða mögulega endursölu á rafmagni í þeim tilgangi. Þá segir að þetta séu sambærilegar aðgerðir og gripið var til í skerðingum fyrr á þessu ári.

Slæm staða miðlunarlóna

„Ástæða þessa er, nú sem fyrr, slæm staða miðlunarlóna. Þórisvatn var langt frá því að fyllast í haust og niðurdráttur lónsins hefur verið mjög eindreginn. Sumarið var þurrt og kalt á hálendinu og bráðnun jökla lítil. Á sama tíma hefur staðið yfir stöðugur flutningur raforku frá Norður- og Austurlandi til suðurs í þeim tilgangi að jafna miðlunarstöðu milli landshluta. Vegna takmarkana í flutningskerfi Landsnets var ekki gripið til skerðinga fyrir norðan og austan fyrr en nú,“ segir í tilkynningunni. 

Skert í samræmi við samninga

Landsvirkjun áréttar, að aðeins sé verið að skerða orku sem Landsvirkjun og viðskiptavinir hennar hafi samið um að sé skerðanleg þegar staða miðlunarlóna er lág.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka