Vara við hálku og mæla með sólgleraugum

Úr vefmyndavél Vegagerðarinnar við austurenda Vaðlaheiðarganga.
Úr vefmyndavél Vegagerðarinnar við austurenda Vaðlaheiðarganga. Ljósmynd/Vegagerðin

Víða er hálka á vegum á Norðurlandi. 

Varað er við þessu í tilkynningu frá þeim sem sjá um Vaðlaheiðargöng og þess um leið getið að vegurinn sé ósléttur neðst í Víkurskarði vestan megin.

Að auki segir í tilkynningunni að það sé gott að hafa í huga að sólin sé lágt á lofti og þess vegna er mælt með að hafa sólgleraugu uppi við þegar komið er út úr göngum vestan megin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert