Dómsmálaráðherra hefur skipað Hákon Þorsteinsson og Odd Þorra Viðarsson í embætti héraðsdómara.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá dómsmálaráðuneytinu.
Segir þar að Hákon hafi verið skipaður í embætti dómara með fyrsta starfsvettvang við Héraðsdóm Austurlands frá 1. nóvember og að Oddur hafi verið skipaður í embætti dómara með starfsstöð við Héraðsdóm Vestfjarða en hann mun sinna störfum við alla héraðsdómstólana eftir ákvörðun dómstólasýslunnar.
Hákon er 44 ára og lauk lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2006 og meistaraprófi frá sama skóla 2008.
Þá útskrifaðist hann með viðbótardiplóma á meistarastigi í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands í fyrra. Hann hefur verið með héraðsdómsréttindi síðan 2009.
Hann hefur meðal annars starfað við lögfræðiráðgjöf hjá Kaupþing banka, sem héraðsdómslögmaður, sem aðstoðarmaður héraðsdómara, sem settur héraðsdómari, aðstoðarmaður dómara við Landsrétt, settur skrifstofustjóri við Landsrétt í fjóra mánuði og sem settur dómstjóri við Héraðsdóm Vestfjarða í tvo mánuði.
Oddur er 38 ára og er með BA-próf og meistarapróf í lögfræði frá Háskóla Íslands.
Þá lauk hann viðbótardiplómu í gagnrýnni hugsun og siðfræði frá sama skóla á þessu ári. Hann hefur verið fulltrúi á lögmannsstofu, lögfræðingur í forsætisráðuneytinu og starfað meðal annars með nefnd um umbætur á sviði tjáningar-, fjölmiðla og upplýsingafrelsis og komið að gerð nokkurra lagafrumvarpa.