Arnar Þór Jónsson, stofnandi Lýðræðisflokksins, hefur kynnt til leiks þá einstaklinga sem skipa þrjú efstu sætin í öllum kjördæmum fyrir þingkosningarnar sem fara fram laugardaginn 30. nóvember næstkomandi.
„Lýðræðisflokkurinn, nýtt stjórnmálaafl sem leggur áherslu á beint lýðræði og frelsi einstaklinga, kynnir með stolti efstu þrjá frambjóðendur sína í hverju kjördæmi fyrir komandi Alþingiskosningar. Þessir frambjóðendur hafa það að leiðarljósi að vernda hagsmuni almennings gagnvart valdakerfinu, með megináherslu á að endurvekja sjálfsákvörðunarrétt, dreifingu valds og íslenskt fullveldi,“ segir í tilkynningu frá Lýðræðisflokknum.
Þar segir enn fremur að Lýðræðisflokkurinn hafi verið stofnaður með það markmið að auka einstaklingsfrelsi og draga úr miðstýringu ríkisvaldsins. Flokkurinn leggur áherslu á að tryggja borgurum rétt til að taka sjálfstæðar ákvarðanir um eigið líf, sér í lagi á sviðum efnahags, atvinnumála og menningar. Með stefnu um hófsemi í ríkisútgjöldum og skattalækkanir stefnir flokkurinn að því að efla atvinnufrelsi og skapa ný tækifæri í íslensku efnahagslífi.
„Íslenska þjóðin á rétt á því að taka beinan þátt í ákvörðunum sem snerta líf hennar. Lýðræðisflokkurinn mun standa vörð um rétt einstaklinganna til að móta sitt eigið líf, án óþarflegs inngrips ríkisvaldsins. Við leggjum áherslu á frelsi, ábyrgð og sjálfstæði borgaranna,“ segir Arnar Þór Jónsson.
Þrír efstu frambjóðendurnir í hverju kjördæmi eru:
Suðvesturkjördæmi:
1. Arnar Þór Jónsson, lögmaður
2. Hrafnhildur Sigurðardóttir, kennari
3. Magnús Gehringer, framkvæmdastjóri
Reykjavíkurkjördæmi norður:
1. Baldur Borgþórsson, ráðgjafi og fyrrverandi varaborgarfulltrúi
2. Hildur Þórðardóttir, rithöfundur
3. Þráinn Guðbjörnsson, áhættustjóri
Reykjavíkurkjördæmi suður:
1. Kári Allanson, lögfræðingur og tónlistarmaður
2. Ívar Orri Ómarsson, verslunareigandi
3. Elinóra Inga Sigurðardóttir, frumkvöðull og hjúkrunarfræðingur
Suðurkjördæmi:
1. Elvar Eyvindsson, bóndi
2. Birkir Einarsson, framkvæmdastjóri
3. Guðbjörg Elísa Hafsteinsdóttir, söngkona
Norðausturkjördæmi:
1. Gunnar Viðar Þórarinsson, framkvæmdastjóri
2. Helga Dögg Sverrisdóttir, kennari og sjúkraliði
3. Bergvin Bessason, blikksmiður
Norðvesturkjördæmi:
1. Eldur Smári Kristinsson, formaður Samtakanna 22
2. Ágústa Árnadóttir, snyrtifræðingur
3. Sigurður Bjarnason, kerfisfræðingur