Öll leyfi í höfn fyrir Hvammsvirkjun

Nú er áætlað að Hvammsvirkjun taki til starfa árið 2029.
Nú er áætlað að Hvammsvirkjun taki til starfa árið 2029. Tölvumynd/Landsvirkjun

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps hefur samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi fyrir Hvammsvirkjun í Þjórsá. Áður hafði sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkt framkvæmdaleyfi fyrir sitt leyti.

Þar með liggja öll leyfi fyrir til að hefja virkjunarframkvæmdir og er nú áætlað að Hvammsvirkjun taki til starfa árið 2029.

Þetta segir í tilkynningu frá Landsvirkjun.

Kemur þar fram að meirihluti sveitarstjórnar Skeiða- og Gnúpverjahrepps hafi talið framkvæmdina vera í samræmi við skipulagsáætlanir, matsskýrslu, úrskurði og ákvarðanir vegna umhverfismats framkvæmdanna og önnur fyrirliggjandi gögn, þar með talda greinargerð umsækjanda.

Var þá skipulagsfulltrúa sveitarfélagsins falið að gefa út framkvæmdaleyfi fyrir virkjuninni.

Þegar hafist handa við undurbúningsframkvæmdir

„Hvammsvirkjun verður á stærsta aflsvæði Landsvirkjunar, Þjórsár- og Tungnaársvæðinu, en þar eru fyrir sjö aflstöðvar sem virkja orku þessara tveggja árkerfa. Virkjunin mun nýta fall Þjórsár neðan Búrfellsvirkjunar, frá svokölluðu Yrjaskeri rétt ofan við bæinn Haga og niður fyrir Ölmóðsey austan við Þjórsárholt. Afl Hvammsvirkjunar verður 95 MW og árleg orkuvinnsla um 740 GWst,“ segir í tilkynningu Landsvirkjunar.

Haft er eftir Herði Arnarssyni, forstjóra Landsvirkjunar, að það sé fagnaðarefni að Landsvirkjun hafi nú fengið öll tilskilin leyfi fyrir framkvæmdum við Hvammsvirkjun.

„Við höfum þegar hafist handa við undirbúningsframkvæmdir og munum kappkosta að koma aflstöðinni í rekstur árið 2029. Eiginlegar virkjanaframkvæmdir hefjast undir lok þessa árs, þar með talin vegagerð innan virkjanasvæðis, gerð fiskistiga og efnisvinnsla í frárennslisskurði,“ segir forstjórinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka