Rannsaka andlát konu á sjötugsaldri

Tilkynnt var um málið um miðnættið í gær og í …
Tilkynnt var um málið um miðnættið í gær og í kjölfarið var einn handtekinn í tengslum við það. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er með til rannsóknar andlát konu á sjötugsaldri. Tilkynnt var um málið um miðnættið í gær og í kjölfarið var einn handtekinn í tengslum við það.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu en þar segir að rannsókn málsins sé á frumstigi og ekki verði veittar frekari upplýsingar að svo stöddu.

Lögreglan tilkynti í morgun um meiriháttar líkamsárás í Breiðholti og var einn maður handtekinn. Samkvæmt heimildum mbl.is tengist rannsókn lögreglunnar á andláti konunnar því máli.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert