Víðir Reynisson kominn í framboð

Víðir Reynisson, sviðsstjóri almannavarna, er kominn í framboð fyrir Samfylkinguna.
Víðir Reynisson, sviðsstjóri almannavarna, er kominn í framboð fyrir Samfylkinguna. Eggert Jóhannesson

Víðir Reynisson, sviðsstjóri almannavarna, mun leiða lista Sam­fylk­ing­arinnar í Suður­kjör­dæmi í kom­andi alþing­is­kosn­ing­um. 

Framboðslisti Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi var samþykktur á fundi kjördæmisráðs í kvöld.

„Þetta var frábær fundur á Eyrarbakka. Það er mikill hugur í Samfylkingarfólki á Suðurlandi. Við ætlum að keyra á samstöðu. Jákvæð og stórhuga stjórnmál eru sterkasta svarið við sundrungu og upphlaupum annarra flokka,“ er haft eftir Víði í tilkynningu frá flokknum.

Þrír bæjarfulltrúar fylgja Víði

Ása Berglind Hjálmarsdóttir, bæjarfulltrúi í Ölfusi og verkefnastjóri hjá Hörpu, er í 2. sæti listans. Í 3. sæti er Sverrir Bergmann, bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ og söngvari.

4. sæti skipar svo Arna Ír Gunnarsdóttir, bæjarfulltrúi í Árborg og félagsráðgjafi.

„Þjóðin þarf festu í landstjórnina núna. Og við höfum séð þessa festu í nýrri forystu Samfylkingar, sem hefur fyllt fjölda fólks um land allt von og trú á að við getum náð samstöðu og náð þjóðinni saman um málin sem mestu skipta í daglegu lífi. Ég hef bara hrifist með og hef fulla trú á þessu verkefni sem við höfum fylgst með í Samfylkingunni á undanförnum misserum,“ er haft eftir Víði.

Í 5. sæti er Ólafur Þór Ólafsson, fyrrverandi sveitarstjóri Tálknafjarðar, í 6. sæti er Arndís María Kjartansdóttir og í 7. sæti er Njarðvíkingurinn Hlynur Snær Vilhjálmsson, iðnaðarmaður og nemi. 

Framboðslisti Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi:

1. Víðir Reynisson – yfirlögregluþjónn almannavarnasviðs hjá ríkislögreglustjóra,
2. Ása Berglind Hjálmarsdóttir – bæjarfulltrúi í Ölfusi og verkefnastjóri hjá Hörpu,
3. Sverrir Bergmann Magnússon – söngvari og bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ,
4. Arna Ír Gunnarsdóttir – bæjarfulltrúi í Árborg og félagsráðgjafi,
5. Ólafur Þór Ólafsson – stjórnsýslufræðingur og fyrrverandi sveitarstjóri á Tálknafirði,
6. Arndís María Kjartansdóttir – kennari og fasteignasali í Vestmannaeyjum,
7. Hlynur Snær Vilhjálmsson – iðnaðarmaður og nemi,
8. Vala Ósk Ólafsdóttir – félagsráðgjafi í barnaverndarþjónustu,
9. Gunnar Karl Ólafsson – starfsmaður Bárunnar stéttarfélags,
10. Eyrún Fríða Árnadóttir – formaður bæjarráðs Hornafjarðar,
11. Renuka Charee Perera – starfsmaður í vörukynningum hjá MS,
12. Óðinn Hilmarsson – húsasmíðameistari,
13. Borghildur Kristinsdóttir – bóndi,
14. Marta Sigurðardóttir – sérfræðingur hjá Isavia,
15. Gísli Matthías Auðunsson – veitingamaður,
16. Eggert Valur Guðmundsson – oddviti Rangárþings ytra,
17. Lína Björg Tryggvadóttir – byggðaþróunarfulltrúi Uppsveita Árnessýslu,
18. Friðjón Einarsson – fyrrverandi bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ,
19. Margrét Frímannsdóttir – fyrrverandi alþingismaður,
20. Oddný G. Harðardóttir – alþingismaður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert