Dagur og Þórður skella sér í landsmálin

Kristrún, Jóhann, Dagur og Þórður.
Kristrún, Jóhann, Dagur og Þórður. Samsett mynd

Dagur B. Eggertsson, fyrrverandi borgarstjóri, verður í öðru sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík norður. Kristrún Frostadóttir, formaður samfylkingarinnar, leiðir í Reykjavík norður og Jóhann Páll Jóhannsson leiðir í Reykjavík suður. 

Þetta herma heimildir mbl.is. 

Í Reykjavík norður leiðir Kristrún, í öðru sæti verður Dagur og í þriðja sæti verður Þórður Snær Júlíusson, fyrrverandi ritstjóri Heimildarinnar. 

Í Reykjavík suður leiðir Jóhann Páll, í öðru er Ragna Sigurðardóttir, læknir og varaborgarfulltrúi, og í þriðja sæti verður Kristján Þórður Snæ­bjarn­ar­son, formaður Rafiðnaðarsam­bands Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert