„Hættan af þessum mönnum var þekkt“

Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu, félags fanga á Íslandi.
Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu, félags fanga á Íslandi. Ljósmynd/Aðsend

Afstaða, félag fanga og annarra áhugamanna um bætt fangelsismál og betrun, segist hafa varað við hættu af tveimur mönnum sem tengjast alvarlegum atvikum undanfarið. Annar þeirra er grunaður um nauðgun og líkamsárás og hinn um manndráp.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Afstöðu en báðir mennirnir höfðu lokið afplánun í fangelsi og metnir sem hættulegir með mikla þjónustuþörf.

„Hættan af þessum mönnum var þekkt og Afstaða búin að vara ítrekað við hvað myndi hugsanlega gerast og því hefði verið hægt að koma í veg fyrir að svona færi ef gripið hefði verið til viðeigandi aðgerða,“ segir í tilkynningunni.

Ítrekaðar viðvaranir frá Afstöðu

Bent er á að þrátt fyrir ítrekaðar viðvaranir frá Afstöðu og sérfræðingum hafi verið skortur á úrræðum fyrir þá einstaklinga sem losna úr fangelsi en þurfa sértækan stuðning til að tryggja bæði þeirra eigið öryggi og samfélagsins alls. Þetta úrræðaleysi hafi nú leitt til þess að tvö hörmuleg mál hafa komið upp.

„Til útskýringar má þess einnig geta að báðir mennirnir voru látnir afplána fulla dóma þar sem hættan sem steðjaði af þeim var þekkt og því ekki boðið upp á reynslulausn, hins vegar hefur það í för með sér að þegar þeim er sleppt er ekkert eftirlit haft með þeim,“ segir enn fremur í tilkynningunni.

Afstaða segir að sveitarfélög eigi samkvæmt lögum að bera ábyrgð á þessum úrræðum en ljóst sé að þau standi ekki ein undir því, sérstaklega þegar um að er ræða smærri sveitarfélög. Það hafi leitt til þess að einstaklingar með sértækar þarfir eru settir í aðstæður sem eru þeim og samfélaginu hættulegar.

Hættan var fyrirséð

„Hættan varðandi þessa tvo einstaklinga var í raun fyrirséð og þeir eru aðeins hluti af örstækkandi hópi sem er á leið í samfélagið eftir afplánun dóma og enn fleiri eru þegar nú frjálsir í samfélaginu.“

Afstaða krefst tafarlausra aðgerða svo koma megi í veg fyrir frekari hörmungar. Stjórnvöld þurfi að bæta aðgengi að úrræðum fyrir einstaklinga sem losna úr fangelsi og tryggja að þeir fái þann stuðning sem þeir þurfa til að aðlagast samfélaginu á öruggan hátt. Ef ekki verður gripið til aðgerða nú þegar er hætta á því að fleiri hörmuleg atvik eigi sér stað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert