Unnið var í gær við að hreinsa gangstéttir við Ráðhús Reykjavíkur þar sem þing Norðurlandaráðs verður haldið í næstu viku.
Mikill öryggisviðbúnaður er vegna þingsins en þar koma saman 87 norrænir þingmenn, forsætisráðherrar, utanríkisráðherrar og samstarfsráðherrar auk gesta frá löndum utan Norðurlanda.
Vopnuð lögregla sinnir öryggisgæslu og götum í miðborginni verður lokað.
Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag.