Kristján Þórður fékk boð um 3. sæti

Kristján Þórður Snæbjarnarson skellir sér í landsmálin.
Kristján Þórður Snæbjarnarson skellir sér í landsmálin. mbl.is/Kristinn Magnússon

Kristján Þórður Snæ­bjarn­ar­son, formaður Rafiðnaðarsam­bands Íslands, verður í 3. sæti í öðru Reykjavíkurkjördæmanna.

Hann tilkynnir á facebook að uppstillingarnefnd Samfylkingarinnar í Reykjavík muni leggja þetta til á fundi á morgun þar sem listarnir verða samþykktir. 

„Það yrði mér mikill heiður og ég veit að þetta verða sterkir listar sem Samfylkingin teflir fram – með öflugu forystufólki, reynsluboltum og svo fólki eins og mér sem er nýtt í framlínu stjórnmálanna,“ skrifar hann í færslu á facebook.

Hann segir að hann vilji að velferðarstjórn verði kosin í komandi þingkosningum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert